Um tólfleytið í gær var ég í rólegheitum, á náttfötunum ennþá, að krydda kjúkling. Þá hringdi dyrabjallan. Ég, eins og eðlilegt er, fór til dyra. Var að vona að þetta væri ekki einhver nágranni þar sem ég var á náttfötunum. Nei, þetta var ekki nágranni, þar var ég heppin. En var ég svo heppin, ónei! Þetta var hinn alræmdi "licensmand" frá DR (danska RÚV) sem allir kollegie-búar óttast!!! Hann var kominn til að láta okkur borga fyrir að eiga sjónvarp. Mikið andskoti var þetta slæm byrjun á deginum! Héðan í frá þurfum við að borga 1000 dkk fyrir að eiga sjónvarp. Flestir komast hjá þessu með því að opna bara ekki fyrir manninum, en ég vissi náttúrulega ekki hver stóð við dyrnar hjá okkur. Venjulega er sent hótunarbréf fyrst þar sem þeir segjast birtast eftir viku eða tvær. Og við fengum auðvitað ekkert svoleiðis bréf. Hnuss... þetta eru víst lögin í landinu. Og á maður ekki að fara eftir lögunum?
Já, og svo klukkaði Tóta mig. Það er víst einhver nýr klukkleikur í gangi, Íslendingar fá alltaf æði fyrir einhverju!
Núverandi tími: 15:20 (breytt í vetrartíma í gær - stórundarlegt fyrirbrigði)
Núverandi föt: Gallabuxur, bolur, flíspeysa og inniskór
Núverandi skap: Nenni ekki að læra, en ætla samt að læra - dugleg!
Núverandi hár: Í tagli og toppurinn í spennum, orðið úr sér vaxið en ég þori ekki í klippingu hérna úti
Núverandi pirringur: Krakkar í Hrekkjavökubúningum að betla nammi, allt of amerískt!
Núverandi lykt: Ný-lykt af svefnsófanum, virðist aldrei ætla að hverfa
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Læra
Núverandi skartgripir: Trúlofunarhringur, hringur og eyrnalokkar sem ég fékk í útskriftargjöf
Núverandi áhyggja: Er ég ekki nógu dugleg að læra?
Núverandi löngun: Súkkulaðikex og mandarínur, ég á bæði svo af hverju ekki? ;)
Núverandi ósk: Að sem flestir komi að heimsækja okkur í Köben
Núverandi farði: Smá púður, eyeliner og maskari
Núverandi eftirsjá: Að hafa ekki farið niður í bæ um helgina eins og planið var
Núverandi vonbrigði: Að þurfa að borga DR 2000 dkk á ári
Núverandi skemmtun: Sudoku, Ørnen, Desperate Housewives, ER og Sálarballið um næstu helgi
Núverandi ást: Svenni minn
Núverandi staður: Litla herbergið í íbúð 7D á Trørød kollegie-inu í Vedbæk í Danmörku
Núverandi bók: Sjálfstætt fólk er komin á náttborðið
Núverandi bíómynd: Flightplan, fór á hana á föstudaginn og fannst hún ekki góð...
Núverandi íþrótt: Hvenær hef ég verið þekkt fyrir að stunda íþróttir?!?
Núverandi tónlist: Ég bíð eftir nýju Hjálmaplötunni, pabbi?
Núverandi lag á heilanum: Ekki neitt
Núverandi blótsyrði: Hmmm... ég held að ég blóti mjög sjaldan, djöfulsins kannski
Núverandi msn manneskjur: hormilla, Nina, Gróa, 100% Ásta, 100% Halla, 100% Inga, Berglind, Finnur, gaui magg, Harpa, Kenneth @SHÍ, one more cup of coffee, Róbot bóndi - idnób tobóR, Stones í kvöld, Víkingur vísindapiparsveinn, Wringa, Þórólfur, Vala Beggerts, 100% Inga Lillý
Núverandi desktop mynd: Einhver blá HP mynd
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Borða, læra, horfa á sjónvarpið
Núverandi manneskja sem ég er að forðast: Engin!
Núverandi dót á veggnum: Mynd sem amma hans Svenna málaði, rosa falleg
ÚFF! Takk, Tóta! Ég er að pæla í að klukka Svenna svo hann bloggi nú einhvern tímann.
5 ummæli:
Verði þér að góðu rósin mín;)
Hey kúl ég á líka heima í íbúð númer 7D ...bara í aðeins öðru landi samt.
Skil vel að þú hikir við að fara í klippingu á óþekktum stað. Ég mæli með því að láta ekki setja strípur eða lita. Fyrsta reynsla mín af hármeðferð í Hollandi: Misheppnuð klipping og fjólubláar strípur - hræðilegt. Hætti strax að láta setja strípur í hárið á mér, hef ekki þorað það aftur!
bestu kveðjur,
Solla
Það er líka örugglega til meira áfengi í íbúðinni þinni Víkingur;)
Neeei það getur ekki verið, það klárast alltaf strax! ;)
Skrifa ummæli