miðvikudagur, október 05, 2005

Charlie and the Chocolate Factory


Við fórum á mánudag í bíó og sáum þessa snilldarmynd eftir Tim Burton. Hún var bara alveg frábær! Við fórum öll þrjú, ég, Svenni og Tóta, með risastórt bros út úr salnum og harðsperrur í kinnunum!!! Ég mæli hiklaust með þessari mynd fyrir þá sem vilja horfa á sniðuga og skemmtilega mynd.

Annars er ég núna að reyna að læra fyrir fyrsta prófið mitt. Á morgun fer ég í Quiz í Bygningsenergi og gildir það til lokaeinkunnar þar sem ekkert lokapróf er í þessum kúrsi. Það verður fróðlegt að sjá hvernig manni á eftir að ganga að taka próf á dönsku! Wish me luck ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel Guðlaug.

Ég efast nú heldur ekki um að danskan verði lítið mál fyrir þig. Þó að það sé frekar skrítin tilfinning að þurfa að nota dönsku, ertu annars byrjuð að glósa á dönsku?

Fyrst voru glósurnar mína nefnilega bland af íslensku og ensku.

Knús,
Jóhanna

Guðlaug sagði...

Takk, Jóhannan mín!

Ég glósa nú bara á öllum tungumálum held ég, ensku, dönsku og íslensku. Danirnir eru nefnilega ekki mjög duglegir að finna upp ný dönsk orð svo allt tæknimál er á ensku. Alveg steikt ;)

Tóta sagði...

úff - ég er alveg að deyja ég vorkenni mér svo að þurfa að vera að læra undir próf! Er með krónískan hroll en mikið verð ég glöð á morgun þegar þetta er búið! Baráttukveðjur í sveitina!!!