Til hamingju með barnið Jóhanna og Palli.
Til hamingju með giftinguna Haffi og Brynhildur.
Til hamingu með starfsheitið Guðlaug og ég. Veiii!!!! Starfsheitiiii!!!! (We live in exciting times.)
Ég verð að segja að ég er pínu svekktur að engin skyldi hafa kommentað á síðustu færslu mína og verð eiginlega að gera ráð fyrir að það sé vegna þess að ég er nú orðinn verkfræðingur og hef með því misst allan húmor. Ég var með afbrigðum skemmtilegur og lífsglaður en nú? Ég er bara þrautleiðinlegur og mér stekkur ekki bros.
Ég hef frétt af því að fóstbræður komi bráðum út á DVD svo að þá verður loks hægt að endurstilla snilldarhúmorinn okkar Begga sem öllum finnst svo góður.
Til hamingju með nýja bílinn Siggi. (ML 500, Haffi)
Jæja, áfram með smjörið!
4 ummæli:
Kæri Svenni verkfræðingur.
Þú ert ekki búinn að missa allan húmor en þú bauðst ekki beint upp á kommentingu í síðustu færslu þinni. Þessi færsla var mun skemmtilegri og ég skora á þig að halda blogginu gangandi. Guðlaug mætti líka alveg taka þátt:)
Kær kveðja, Tóta.
Haha - var að taka eftir nýjum titli á blogginu. Doldið gott (mdr)
Takk Svenni verkfræðingur!
En er þetta ekki meira en starfsheiti, er þetta ekki *lögverndað* starfsheiti? Það er nú meira en ég fæ nokkurn tíma!
Þetta er allt mjög alvarlegt og ég vil að þið kallið mig héðan í frá Meistara Svein, ennars siga ég lögmanni á ykkur.
Takk Tóta, ég er mjög sáttur við titilinn. Tvíræðni gerist ekki mikið betri.
Skrifa ummæli