mánudagur, september 24, 2007

Spurning um að breyta titlinum á blogginu aðeins?

Ég nenni ekki að hafa mörg orð í þetta sinn enda hef ég ég bloggað alltof mikið undanfarið. Þetta verður því á formi sem væntanlega kemur öllu til skila á í sem fæstum orðum.

Eftirfarandi hefur gerst:

Við komumst að því að Hanstholm er krummaskuð.

Virðing okkar á sjómönnum hefur aukist til muna.

Bergen hélt áfram að vera flottur bær.

Hjaltland hélt áfram að sökka feitt.

Staðfest var að flatt kjötfars á ekki heima á milli tveggja sesamfræhúðaðra brauða.

Sjóveikipillur virkuðu.

Haffi var steggjaður, og Brúnhildur gæsuð.

Sveinninn fann á sér, í þriðja sinn, og það meir en nokkru sinni áður.

Pálmi, Haffans, sagði ófáa söguna.

Höfuðverkur Guðlaugar varðandi vinnu jókst að styrk og dýpt.

Tryggvi og Tótla eru orðnir foreldrar, to happiness!

Að lokum, öllum til mestu furðu, veðrið á Íslandi sökkar ennþá!

Engin ummæli: