mánudagur, október 22, 2007
List verður að próvókera
Ég svaf vel þessa helgi. Ég svaf hins vegar mun betur aðfaranótt föstudags vegna þess að þá dreymdi mig að Ma&Pa hefðu gefið mér Porsche Boxter S. Þetta kom sér mjög vel þar sem við Guðlaug þurfum eiginlega á tveimur bílum að halda. Ég fékk meira að segja að keyra hann sem er yfirleitt mjög erfitt að gera í draumi, þ.e. njóta þess góða sem draumurinn býður uppá. Sem dæmi um það hef ég aldrei getað borðað neitt í draumi. En jæja, svo vaknaði ég, snós að vanda tvisvar og fór í vinnuna en þegar ég var á leiðinni niður lyftustokkinn hrundi óbærilegur hversdagsleikinn yfir mig líkt og hlutur sem hrynur á annan hlut. Þannig var það Skoda Fabia station, 1.4 (68 hö) sem póp þegar ég þreist á opningsflokkinn á lyklinum mínum. Pípið var eins og glóandi fleinn í eyrum mínum og ég sagði vonsvikinn við Guðlaugu: "Enginn fiskur eða grænmeti í mánuð!"
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þig hefur ekki dreymt Mustang hjólið sem þú skildir eftir í Danmörkunni? Þú hlýtur nú að sakna þess...
Það er vissulega erfitt að yfirgefa so young, en ég veit að það er í góðum höndum og verður mikið notað. Því fannst alltaf svo gott að fá að fara út að hjóla.
Skrifa ummæli