Takk fyrir allar kveðjurnar, kæru lesendur. Okkur gekk mjög vel með varnirnar okkar fyrir framan stóra hópa af áhorfendum. Öll fjölskyldan hans Svenna plús foreldrar mínir komu hingað til að fagna með okkur og voru hér í viku. Þau voru viðstödd varnirnar okkar sem fóru á þann veg að ég og Gústi fengum 11 og Svenni fékk 10!! Getum ekki sagt annað en að þessar einkunnir komu skemmtilega á óvart. Héldum flotta grillveislu fyrir fjölskyldurnar á þriðjudaginn og svo var farið í Tívolí og í bæjarferðir. Þetta var alveg frábær tími og takk öll sömul fyrir að koma!
Nú tekur við pökkun og flutningar til Íslands. Við vonumst samt til að geta eytt sem mestum tíma með öllum vinum okkar sem við skiljum eftir hér í Danmörkinni. Hlökkum svo til að sjá vinina og fjölskyldurnar sem við eigum á Íslandi eftir rúmar 2 vikur!!
8 ummæli:
Innilega til hamingju með árangurinn. Glæsilegt!
Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt. Þið bara á leiðinni heim, finnst svo stutt síðan þið fluttuð út og voruð að setja inn myndir af íbúðinni og svoleiðis. Hlakka til þegar ég verð sjálf á leiðinni heim, einhvern tímann ...
Gangi ykkur vel að pakka og njóta daganna sem eftir eru.
Knús :-)
Innilega til hamingju með frábæran árangur! Ekki við öðru að búast :-)
Sjáumst vonandi sem fyrst eftir að þið komið heim og ekki síðar en 6.október
Brynhildur
Til hamingju með glæsilegan árangur
hæ hæ bædi tvø! til hamingju med snælandsarangurinn! mer fannst leidinlegt ad komast ekki i fagnadarlætin en madur a bara afmæli einu sinni a ari!
goda rest her i dk!
hilsen
hb
Til hamingju með árangurinn!!!
Vona að við náum að sjá ykkur áður en þið farið heim.
Kv Þórhildur og mavsen
Innilega til hamingju með glæsilegan árangur. Hef haft gaman að kíkja á síðuna ykkar.
Bestu kveðjur frá Þorgerði.
(Jóhönnu mömmu og bráðum ömmu)
Til hammó með að vera orðin meistarar, eða a.m.k. búin með vörnina
Hvernig væri svo að koma með eitt blogg um heimferðina? Er spennt að heyra.
Skrifa ummæli