Kvöldmatur 0: Nautalund með kartöflubátum og piparsósu, ásamt maískólfi.
Kvöld 0: Bíll framtíðarinnar valinn, GL420 CDI.
Dagur 1: Charlottenburg skoðuð að takmörkuðu leyti. Ekki verslað í KaDeWe, bara chillað.
Kvöldmatur 1: Nautalund með bakaðri kartöflu og piparsósu, án maískólfs.
Kvöld 1: 25% sigur okkar Guðlaugar á Bjögga og Gróu í Sequence.
Dagur 2: Potsdamplatz skoðað, ásamt múrnum. Ekki verslað í Arkaden, bara borðað.
Kvöldmatur 2: Dúfulæri og bringur með madeirasósu, rósakáli og foie gras smurðu ristabrauði.
Kvöld 2: 100% sigur drengja á stelpum í Trivial Pursuit. Háð vegna óeðlilegs minnis. Hver veit ekki hvaða spendýr hefur þyngsta heilann? Kommon! 33% sigur á hinum.
Dagur 3: Keyrt heim. Tekinn af lögreglunni, -35 Evrur. Sprakk dekk á 140km/klst, ekkert mál. Bíll startaði ekki eftir dekkjasprengingsflokk. Bíll startaði ekki þegar átti að keyra honum upp í ferjuna, ýta bíl í 200m. Ferjan sökk ekki.
Kvöldmatur 3: Vedbæk pizza með Beikoni og Pepperóní, bara upp á flippið.
Kvöld 3: Algjört chill, Barcelona vann Bilbao, Stenson vann accenture og Guðlaug sofnaði á mér klukkan níu.
P.S. Þetta var góð ferð, og enn eitt smábarnið keppir nú um mússikrúttbikarinn okkar Guðlaugar, nefnilega hún Arna Liv þeirra Gróu og Bjögga.
Þraut: Af hverju velur fólk sér mullet/bundesliga hárgreiðslu?
5 ummæli:
Beggi - þú ert nú nýbúinn að vera í heimsókn. Strax búinn að gleyma hvernig Sveinninn er!?!
Annars eru Þjóðverjar kúl - bundesliga er bara til að fullkomna töffaraskapinn!
Hér vestanhafs er mulletinn tengdur við sveitalubb sem aka um á pikköppum í væfbíter og trukkabílstjóarderhúfu. Afar smekklegt lið.
Nei, flasskó. Flassari Kópavogs. The Krauts eru líka mikið fyrir pastelliti í hári sínu. Lúðbe. Lúðar Berlínar.
Til hamingju með daginn, Svenni!
Kveðja Erling
Dáldið seinn á því, Ellinn? Eða alveg eins: Fullsnemma í því, Ellinn?
Annars bara takk fyrir og sömuleiðis Erling. Til hamingju með að vera tveggja barna faðir.
Skrifa ummæli