mánudagur, febrúar 05, 2007

Fréttir af eyrinni

Begginn var í heimsókn um helgina og það var gríðarlega gaman. Ég þurfti virkilega á honum að halda því allt kvenfólkið sem ég umgengst hérna úti er hægt og rólega búið að dempa kímnigáfuna sem ég tel mig hafa. Þetta rann upp fyrir mér þegar við helgargengið; Ég&Stuðlaug, Tóta og ofsafengin og U&E_ai vorum á leiðinni á Italiano að fá okkur ostalummur. Þá sagði die toten Hosen: Hei, það er útsala í hannyrðabúðinni. Ég má ekki missa af því. Við þetta rann upp fyrir mér að ég er hættur að nenna að hæðast að svona athugasemdum því að kvenfólkið gefur manni bara ill augu ef maður segir eitthvað þannig.

Það var því mikill léttir að hlæja með einhverjum að vitleysunni í stelpunum og undra sig á því hvað þær geta talað ofsalega mikið.

Á Laugardaginn var tekinn labbingur niðrí bæ ásamt ferð í golfbúð dauðans. Um kvöldið var Litla apótekið tekið á þetta með Steina stút og spúsu hans, Jóhönnu. Gyða var of merkileg með sig til að nenna að mæta og því verður hún héðan í frá þekkt sem merkikertið. Kvöldið var allt hið ágætasta enda ekkert merkikerti til að saurga umræðurnar.

\Begin og ég fórum líka tvisvar í golf um helgina, samtals 27 holur. Föstudagurinn var rosalegur, við fórum báðir 9 holur á 48 höggum og ég setti 4 bogey og 3 pör og skeit upp á bak á tveimur holum. Á sunnudaginn vöknuðum við snemma og tókum 18 holurog Sveinninn skeit alveg upp á bak, var að meðaltali 2 höggum verri en Anfangen á öllum holum. Til dæmis var 15, 12 og 10 á skorkortinu mínu. Það er nú sannað að Schweinehund þarf að fara í kennslu ef þetta á ekki bara að vera asnalegt.

Um Sunnudagskvöldið var tekin purusteik á þetta. Tvö stykki reyndar, ein fyrir mig og ein fyrir hin. Hrikalega gott og ofát átti sér þ.a.l. stað. Svo var tekinn spilíngsflokkur á þetta, kk. vs. kvk. og það fór allt fram eðlilega. Trivial var basic og Party&Co var trivial.

Annars er það að frétta að janúarkúrsinn hennar Guðlaugar fór á besta veg, með áherslu á besta. Verkefnið mitt þokast áfram með hraða hljóðsins, í tómarúmi. Það er frekar erfitt að hafa sig í einhver stórvirki þegar maður veit ekki alveg hvernig tilraunir maður á að gera.

Ég er búinn að downloada frekar miklu, t.d. er Monty Python's Flying Circus á leiðinni á iPodinn, líklega í næstu viku. Það er töff.

Ég er ennþá mikið í Mastodon, ásamt gömlu hetjunum eins og Pantera, Leddaranum og Dio. Tenacious D platan nýja er líka frekar skemmtileg.

Það gerðist líklega í fyrsta sinn í dag að mig langaði að sjá mynd sem er með Forest Whitaker. Batnandi manni er best að lifa / Heimur versnandi fer.

Allavega, í kvöld verður slappað af yfir ólöglegu Idoli og farið snemma að sofa. Kannski líka gætt sér á íslensku nammi sem er nú til í álíka miklu magni og á Vegamótum (á Snæfellsnesi, djammarar).

Ég er alveg viss um að allavega einn kvenkyns lesandi trúir öllu sem stendur hér að ofan.

Ég gleymdi reyndar að segja frá ferðinni á Hvítan og Pisst.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að fá fréttir af ykkur. Ofsalega öfunda ég ykkur af gestaganginum. Annars er engin heimþrá í gangi í Pittsburgh núna enda von á gestum í mars og apríl/maí :-) Knús og kveðjur.

Nafnlaus sagði...

Ooojjjj nenni ekki einu sinni með ykkur til Berlínar ;)