mánudagur, febrúar 05, 2007

Þetta ætlaði ég að segja ykkur þann 8. janúar en ég gat ekki bloggað

Ég, Svenni, er byrjaður á mastersverkefni. Titillinn er "Elastodynamic Waveguides." Þetta er svona frekar mikið fræðilegt stöff, tengt hátíðniörvun á einföldum ólínulegum kerfum. Einhver rússadjöfull hefur sumsé leitt út alls konar drasl sem gefur til kynna frekar áhugaverð fyrirbæri sem eiga að gerast við hátíðniörvun og ég á að reyna að sýna fram á að þessi fyrirbæri eigi sér einhverja stoð í raunveruleikanum. Pretty non-basic sumsé.

Stuðlaugin er núna í janúarkúrsi sem fjallar um jarðskjálftaverkfræði. Hún mun svo byrja á sínu verkefni í byrjun febrúar. Hún er líka komin með 13 númer tvö, sem er frekar svalt en ég er viss um að hún vilji ekki að ég geri alheimi það kunnt. Það er bara svo gaman að stríða henni smá.

Mastodon, sem er hljómsveit, er í uppáhaldi þessa dagana en það er líka fræðiheitið á loðfíl sem lifði í Ameríku fyrir þónokkrum árum.

Ég fékk golfskó, polobol og golfhanskann minn um jólin svo að ég er að hugsa um að fara í golf næstu helgi, ef það gefst tími. Veðrið hérna er sumsé ekki breytt frá september.

Jæja, nú er ég farinn að tala um veðrið og því verð ég að hætta þessu og halda áfram að lesa mér til um alls konar ólínulegheit.

Þraut: Í hvaða rokklagi á ensku er þessari huggulega setningu varpað fram? Gef mér eina ástæðu til að ekki rífa fjárans andlitið af þér, hví líturðu ekki vel í þessi augu því ég er sá sem mun rífa fjárans hjartað úr þér.

2 ummæli:

Víkingur sagði...

Mér fannst gaman að sjá orðið ,,kunnt" skrifað á íslensku, sérstaklega vegna þess hve það minnir mikið á C U Next Tuesday orðið sem er harðbannað að nota svo almenningur heyri til. Annað allnokkuð betra er þó 2. persóna fleirtölu af þýsku sögninni können.. þá erum við sko að tala saman. Það er eitthvað sem íslenskan hefur ekki upp á að bjóða.
Hvað varðar þrautina mundi ég skjóta á Slayer, vona að ég verði mér ekki til skammar með því. Bið að heilsa Stuðlauginni og óska henni til hamingju með 13 númer 2 svona fyrst mér er um það kunnt!

innevS sagði...

We have a winner, Exile með Slayer var málið.