sunnudagur, apríl 30, 2006
Menn með vélsög
Ekki er hægt að vakna við óþægilegri aðstæður en þegar tveir menn með vélsög standa fyrir utan svefnherbergisgluggann hjá manni! Gud! Það gerðist sem sagt í morgun og þeir söguðu niður eplatréð í garðinum okkar!!! Manni hefnist greinilega fyrir að sjá sér ekki fært að taka þátt í "havedag"... Sumir eru bara í skóla og þurfa að læra - halló, það eru að koma próf og verkefnaskil eru á milljón! Nei, nei, Danir þurfa bara sinn 9-5 vinnudag á virkum dögum - helgar og kvöld eru fyrir "hygge"! Craps - ekki veit ég hvernig þeir fara að þessu :oP
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Ha!?! Söguðu þeir niður eplatréð ykkar? Fæ ég þá ekkert eplapæ!?!
úff já Danirnir geta sko verið latir - það tók einmitt hátt í hálft ár að gera upp kantínuna í skólanum. Fljótlega eftir að skólinn byrjaði í haust var hengdur miði á kantínudyrnar að hún opnaði aftur í fyrsta lagi 16.febrúar! Svona miðað við að byggja heilt hús á einni viku í Extreme Homeservice þá finnst mér þetta heldur lélegt!
Já - ég er einmitt búin að vera að spá í þetta! Mjög undarlega klædd greyið, fer greinilega bara eftir tískustraumum ;)
Annars er alveg sjúklega heitt hérna - núna eru 18°C!!! Ekki þolanlegt að sitja inni að læra og burðast með þunga skólatösku - sviti, sviti, sviti... best að fara að koma sér í magabolinn ;)
HAHAHA - Guðlaug í magabol! Kannski í næsta lífi ;)
Ætli nokkur okkar myndi láta sjá sig í magabol ... ?
Ég verð samt líklega að fara að sætta mig við að vera meira í hlýrabol - ekki vil ég vera með bóndabrúnku þegar ég smelli mér í bikiníið við sundlaugina á Spáni!
Spáin segir 18-22°C á morgun - og stálið bíður... hver sagði að það væri erfitt að læra fyrir próf á Íslandi þegar það er bjart úti - og nota bene bara bjart en ekki heitt! Fjúff! Mann langar bara að grilla, fara í sund, hjóla...
Undur og stórmerki! Veðurstelpan fylgir nákvæmlega því sem ég segi - hún er núna í hlýra-maga-bol!!!
Skrifa ummæli