þriðjudagur, apríl 25, 2006

25 ára - fínn aldur!



Yngismærin fyllti fjórðungsöld síðastliðinn föstudag. Kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar - ykkur var samt öllum boðið í partý, í alvörunni! Þið komið bara næst... En ég fékk líka frábærar afmælisgjafir. Á myndinni er ég í lopapeysu sem Tóta prjónaði og gaf mér - ótrúlega flott! - og er að fara að opna pakka frá Tinnu, Valtý, Pétri og Sollu, sem ég var nýbúin að sækja á pósthúsið. Í pökkunum leyndust rosa flottur hringur og eyrnalokkar með bleikum prinsessusteinum :) Svo voru Sara systir og Helgi búin að gefa mér æðislega flott hálsmen og eyrnalokka. Greinilegt að þeim finnst ég ekki nógu skrautleg ;) Takk fyrir mig!

Á afmæliskvöldinu var okkur ásamt Erling boðið í mat til Önnu Heru og Pawels. Rosa gaman að hitta liðið! Takk fyrir afmælisveisluna ;)

Á laugardagskvöldið var þessi íslenski lambahryggur eldaður - nammi, namm!



Og Tóta fékk loksins páskalambið :)



Svo var bökuð frönsk afmælis-súkkulaðikaka



Namm...



Svo var tekið til við að spila Trivial Pursuit



Og við Tóta vorum "on fire"!



Svenni átti í einhverju basli...



... og tapaði fyrir okkur!!!



Annars voru páskarnir í Svíþjóð líka alveg æðislegir - myndir komnar á myndasíðuna. Þetta var í fjórða skiptið sem ég heimsæki Söru og co. í Stokkhólmi svo núna erum við búum að sjá það helsta í borginni og erum því bara að njóta þess að vera saman. Fannar er alltaf að stækka og þroskast og núna getum við spilað ólsen ólsen tímunum saman og hann notar alls konar "trikk" til að vinna, eins og til dæmis að geyma átturnar þangað til síðast! Hvaðan ætli hann hafi lært það? Svo var ég að fá þær fréttir að hann kemur í "ömmu og afa orlof" til Íslands í júní og því fæ ég að hitta hann fljótt aftur - æði! Viktor breytist náttúrulega enn hraðar en Fannar og er farinn að labba og hlaupa út um allt. Hann er líka farinn að mynda orð og tekur til dæmis upp á því að kalla á bróður sinn! Mjög fyndið að heyra rúmlega eins árs kríli kalla á einhvern, með réttum áherslum og allt!

Jæja, sveiflan bíður... Er búin í prófum 24. maí og við förum til Spánar 3. júní svo ef einhver vill koma í heimsókn og njóta góða veðursins í lok maí... Einnig ef þið þekkið einhvern sem vantar íbúð í Köben í sumar þá er okkar laus frá miðjum júní til loka ágúst og endilega hafið samband: gudlaug_osk@hotmail.com

5 ummæli:

Tóta sagði...

Mmmmm.... Þetta var sko alveg æði - aftur kærar þakkir fyrir mig!

Nafnlaus sagði...

Innilega til haminju með daginn elsku Guðlaug mín. Hlakka til að hitta ykkur þegar þið komið heim í júní.

Guðlaug sagði...

Takk sömuleiðis, Tóta!

Brynhildur, uppskriftin kemur fljótlega... :)

Takk Íris mín! Hlakka líka rosa til að koma heim - vona bara að ég verði á undan bumbubúunum... ;)

Tóta sagði...

Já Brynhildur mín - ég get sko mælt með þessari bombu!

Nafnlaus sagði...

hahaha gott hjá ykkur að taka svenna í trivial... Ekki jafngóððar og við Alma sem unnum Raggí um daginn ÞAÐ er skemmtilegt ;) Var að klára kreisí próf væri alveg til í að koma til í ykkar í heimsókn... en það verður í haust :)