Síðastliðið föstudagskvöld var okkur Svenna boðið út að borða. Það var "afi í Danmörku" sem bauð. Hann er alveg yndislegur eldri danskur maður sem var giftur frænku hans Svenna. Gott að vera loksins búin að hitta hann, en hann býr nú bara í næsta bæjarhluta.
Á laugardaginn hitti ég Völu, sem býr í Lundi, á kaffihúsi niðri í bæ. Hún ákvað þá að skella sér yfir sundið og hafði samband við mig! Rosalega gaman að hitta skvísuna - við höfðum sko nóg að tala um enda ansi langt síðan við hittumst síðast. Nú vonum við bara að við Svenni getum fundið smugu frá lærdómi til að geta skellt okkur í heimsókn til Lundar.
Á laugardagskvöldið skelltum við okkur svo á Spiseloppen í Christianiu með Tótu, Dísu og Hannesi. Ekkert okkar hafði komið þarna áður svo við vissum ekkert hvert við vorum að fara. Og þeir sem hafa komið þarna vita að aðkoman er ekki eins og á öðrum álíka fínum veitingastöðum! Við gengum upp útkrotaðan og ógeðslega "creepy" stigagang og fundum þar þennan fína veitingastað á 3. hæð. Maturinn var MJÖG góður!
Og helgin var líka vel nýtt í lærdóm þar sem verkefnaskil voru í gær. Alltaf ljúft að skila af sér verkefnum eða vera búin í prófum. Og við Tóta gerðum okkur því glaðan dag og fórum í Fisketorvet í dag - fyrsta skipti hjá mér! Við versluðum örlítið og svona, voða gaman.
Svo er Gyða gella búin að kaupa sér flugmiða til okkar og verður hjá okkur 5.-10. apríl!!! Úúúúúú... gaman, gaman, gaman!
5 ummæli:
Æææææ hvað mig langar í heimsókn til ykkar :) hvenær koma skötuhjúin heim? við stebbi og snorri eigum flug til danmerkur þann 20.maí og verðum þar í 10 daga. eruði í prófum þá kannski? væri gaman að hitta ykkur ikkvað :D
Bið voða vel að heilsa :*
kv.Steina
Oh, ég hlakka svo til að koma til ykkar :):):) það verður yndislegt!!!
Æi, Steina kleina! Ég er að fara í fjögur próf!!! Og veit ekki ennþá hvenær ég verð búin - allavega ekki fyrr en 29. maí :o(
Ég vil hitta ykkur Steina - ég fer bara í eitt próf þann 23.maí - munnlegt á dönsku :s
Það er sko alltaf tími til að hitta þig, Gróan mín! Við finnum okkur einhvern góðan tíma til að hitta þig - hlakka ýkt til ;o)
Skrifa ummæli