þriðjudagur, febrúar 04, 2014

Leikskólalíf

Í þessum skrifuðu orðum er litli kúturinn minn að borða fyrsta hádegismatinn sinn í leikskólanum. Ótrúlegt hvað tíminn líður ógeðslega hratt! Hann var bara pínu ponsu lítill, ennþá á brjósti, þegar við fluttum hingað til Bergen. Og nú er hann farinn að borða mat í leikskóla. Magnað! Ég fór með honum í gær í fyrstu heimsókn og hann var rosa kátur og spenntur að hitta krakka á sínum aldri og nýtt dót og svona. Svo fórum við saman í morgun og ég var með honum í ca. 40 mín. Svo ákváðum við að ég myndi prófa að segja bless og skreppa aðeins heim. Og þessi litla elska knúsaði mömmu sína smá og svo fór hann bara að leika. Alveg sáttur. Feginn kannski að vera laus við mömmu sína. Ég fékk skilaboð stuttu síðar frá kennaranum um að allt gengi rosa vel og hann mætti vera fram yfir hádegismatinn sem er kl.11. Þá fer ég og sæki hann eftir smá stund eða rétt fyrir kl.12. Spennandi og gott að svona vel gengur, vonum að það haldi áfram.

Siggi er nú heima með hlaupabólu greyið. Byrjaði að fá bólur síðastliðinn fimmtudag og ennþá eru að koma nýjar bólur, en það versta hlýtur að vera búið. Hann fer því ekki leikskólann fyrr en í fyrsta lagi á fimmtudaginn. Gunni fékk bóluna fyrir ca. 3 vikum og var hún nú mildari hjá honum en Sigga. Það er sem sagt staðfest að það er betra að fá hana yngri en eldri. Svenni hefur þurft að taka smá veikindaleyfi svo ég geti verið með Gunna í leikskólanum. Ég fer svo að vinna á fimmtudaginn!! Það er eitthvað nýtt fyrir mig, haha! Ekki búin að vinna í tæp tvö ár... Þetta verður eitthvað. Nýi vinnustaðurinn heitir Sweco og er staðsettur ca. 8 km héðan frá, svo á bíl er ég innan við 10 mín. í vinnuna en fer á hjóli og í Bybanen þegar Svenni er með strákana og á bílnum. Þetta verður mikil breyting fyrir okkur, tveir guttar í leikskóla og fullorðna fólkið að vinna. Alls konar nýjar planleggingar framundan. Svo þurfum við að reyna að koma inn skemmtilegum upplifunum á milli pesta!





1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rosalega gaman að heyra frá ykkur. Bíð spennt eftir framhaldinu. Hvernig líst þér á vinnuna og hvernig gengur með Gunna? Já og hvernig gengur bara allt heimilislífið? Hmmm held ég verði að heyra í þér á næstunni :) Knús úr barneignarorlofinu ;)
Love, Tóta.