sunnudagur, janúar 19, 2014

Gunnar Ágúst eins árs 18.des og jólin

Alltaf ætla ég að standa mig betur í þessu en... eitthvað veldur því að ef ég blogga ekki strax þá safnast upp og þá finnst mér of langt síðan síðast og of mikið búið að gerast. Nóg af væli um það :)

Gunnar Ágúst varð eins árs 18.desember síðastliðinn og buðum við mömmu og pabba og Ollu, Ingþóri og Hafdísi í smá afmælisveislu. Gunni litli var vel upplagður og ánægður með daginn þó hann hafi ekki fattað að þetta snerist allt um hann!





Jólin voru ósköp notaleg hjá okkur. Veðrið var þó frekar leiðinlegt; dimmt yfir, rigning og rok. Gunni var þar að auki lasinn, með 40 stiga hita öll jólin. Svo við vorum hálfgerðir innipúkar og fengum pínu nóg af því að hanga hérna heima. En það var allt fullt af nýju og fallegu dóti og bókum að lesa svo við höfðum nóg að gera. Á þriðja degi jóla var okkur boðið í mini-jólaboð til Ollu og Ingþórs ásamt pabba (mamma var að vinna) og Írisi og Nökkva. Þau syngja einmitt líka með okkur í sönghópnum. Það var ofsalega skemmtilegt og gaman að fá smá jólaboðsfíling þó við værum fjarri góðu gamni á Íslandi.






Nú er allt komið í rútínu hjá okkur aftur sem þó breytist fljótt eftir 2 vikur þegar Gunnar Ágúst byrjar í leikskólanum og ég í vinnunni! Það verður vissulega mikil breyting þar sem það eru næstum 2 ár síðan ég var í vinnu síðast... en á þessum tveimur árum er nú heldur betur mikið búið að gerast svo ekki hef ég setið auðum höndum. Jæja, ég ætla að skella mér að bragða á bananabrauðinu sem var að koma úr ofninum, namm! Eigið góða viku framundan.

1 ummæli:

Sara sagði...

Gaman að fá nýja færslu og fullt af flottum myndum.
Kram <3