En stóru fréttirnar eru kannski þær að Gunni er farinn að taka nokkur skref alveg sjálfur. Hann verður örugglega farinn að ganga um hérna um jólin. Svo fengum við líka þau gleðitíðindi að við fáum pláss fyrir Gunna 1. febrúar í leikskólanum hans Sigga! Það verður frábært að geta farið með þá saman og Gunni er líka orðinn svo heimavanur þarna, fer með mér tvisvar á dag og vill helst vera skilinn eftir með Sigga. Svo aðlögunin verður örugglega þægileg. Spennandi tímar framundan á nýju ári!
miðvikudagur, desember 11, 2013
Veikindi á aðventunni og jólaball
Nú er kominn sá tími árs sem við höngum mikið innandyra og erum dugleg að hittast á jólaböllum og þess háttar. Því fylgja því miður miklar pestir og smit. Siggi byrjaði með hálsbólgu og vægan hita í síðustu viku og var heima í 5 daga. Við leyfðum okkur þó að skella okkur á jólaball Íslendingafélagsins á sunnudaginn. Ég og pabbi sungum við jólamessu íslenska safnaðarins og fengum þann heiður að syngja með Huldu Björk Garðarsdóttur í Ó helga nótt. Það var upplifun fyrir okkur að minnsta kosti... Jólaballið tókst vel og var dansað og sungið í kringum jólatré. Jólasveinar mættu að sjálfsögðu á staðinn og gáfu krökkunum lítinn nammipoka. Siggi lét nammiþörfina ná yfirhöndinni og þáði poka frá sveininum en um kvöldið þegar hann fór að sofa átti ég að lofa því að við færum aldrei á jólaball aftur!! Honum þykir þetta jólasveina-, Leppalúða-, Grýlustúss ekkert sniðugt. Hann getur til dæmis ekki hlustað á lagið um Leppalúða með Baggalúti, honum finnst það hreinlega óþægilegt. Elsku karlinn er með lítið hjarta. En nú erum við Gunni sem sagt tekin við kvefinu hans Sigga og Gunni greyið ósköp slappur og gubbaði meira að segja í morgun. Við höldum því bara áfram að hanga inni... Það hefur þá allavega verið tími til að baka smákökur og eru boxin orðin smekkfull af ilmandi kökum. Svo ætlaði ég að nota tímann og taka nokkrar jólamyndir af þeim bræðrum - hér fyrir neðan sjáið þið afraksturinn!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Til lukku með leikskólaplássið. Verður flott.
Þú þarft að taka mynd af Sveini innrúlluðum í jólaseríur.
Fínar myndir af strákunum elsku Guðlaug.
Skrifa ummæli