Fólk sem heldur að það sé línulegt samband milli hláturs og fjölda endurtekninga á punchline-inu. Dæmi:
Ófyndinn segir: Vitiði hvað hommar og lego eiga sameiginlegt?
Hinir segja: Nei.
Ófyndinn segir: Staflanleika!
Hinir segja: Hahahaha!!!
Ófyndinn segir: Staflanleika!
Hinir segja: Hehehe!
Ófyndinn segir: Þeir eru sko báðir staflanlegir.
Hinir segja: Já, einmitt.
Ófyndinn segir: Það er hægt að stafla þeim.
Hinir segja: Nú drepum við þig.
4 ummæli:
This one goes to eleven!
Það mætti halda að þú hafir lent í fjölskylduboði hjá föðurfjölskyldu minni!
Hmm betra að hafa þetta nafnlaust :p
kveðja, Vík...urVagnar.
Ohhh! Ég þoli ekki þegar þú gerir þetta. Hvenær ætlarðu að hætta að kommenta, Jóhanna Vilhjálmsdóttir!!
Við byrjum með látum...h vera hlátur og n fjölda endurtekninga. Ég myndi einmitt segja að þetta væri línulegt samband með neikvæða hallatölu -k, k>0: h=kn+b, þar sem b er fasti. Kannski er manndráp fullróttækt og því veldisvísisfall í líkara lagi...
Djöfull var þetta fyndin athugasemd. ÉG er að deyja úr hlátri. Best að lesa hana aftur...
Skrifa ummæli