fimmtudagur, febrúar 28, 2008

De Hnerrum

Nú finnst mér vera kominn tími til að tjá mig um mál sem ég hef hingað til verið eilítið feiminn að kunngjöra. Þetta snýst um hnerra. Eða eitthvað þaðan af verra, herra.

Allavega, ég hef mikið gaman af hnerrum og ég hnerra hátt og snjallt og hef einnig þjálfað með mér tækni sem beinir meðfylgjandi loftstraum út um munninn frekar en nefholið. Hef mína tækni niður og allt, verð ekki kitlandi eða nokkuð. Eins og sumir lesendur þekkja, þá hlýst oft mikill sori af því að hnerra um nasir, og nægir að nefna Orku-Þrepskjöld þessu til stuðnings.

Ég, ásamt líklega öllum öðrum, lendi stundum í þeirri ógæfu að "missa" hnerrann sem nokkurn veginn það versta sem getur gerst, fyrir utan að gleyma að læsa dyrunum með saurbleytu og samstarfsmaður opnar. Það er sumsé það versta sem getur gerst.

Flestir sem missa hnerrann hafa líklega engra annarra kosta völ en að svekkja sig og sætta sig við að allir eru að hlæja að sér fyrir þessi undarlegu læti, án hnerrans.

Ég hef, reyndar fyrir þónokkru, leyst þetta vandamál. Hægt er að ná sér í hnerrann aftur með því einu að stinga tannstöngli upp í nefið, alldjúpt, og róta eilítið í bifhárunum. Þetta kallar strax aftur í hnerrann of laðar oft fram bónus-hnerra sem fylgir strax á eftir. Þetta er megintilgangurinn með Swiss-Army Knife-inum sem ég hef gengið með síðustu árin.

Ég átta mig á því að sumum kynni að finnast þetta ógeðslegt en ég hvet alla sem hafa fengið nóg af yfirgangi hnerra-örlagadísanna til að taka málin í eigin hendur og hnerra að vild héðan í frá.

5 ummæli:

Beggi frændi sagði...

Ekki, ekki, ekki

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra Svenni að þú breytist ekki með árunum :).
Kv
Fjóla úr sólinni

Pall Melsted sagði...

Ég mæli með að fylgja hverjum hnerra almennilega eftir með eftirhnerraöskri, svona attsSJÚÚÚ!

Ef maður missir hnerran er einnig hægt að plokka nasahár, þá er stutt í næsta hnerra. Svenni ertu ekki með flísatöng á vasahnífnum þínum?

innevS sagði...

Ég hef ekki enn viðurkennt tilvist nefhára. And you should'nt either!

Nei Anders, að plokka nefhár er mjög vont en í mér skilar það ekki hnerringsflokki nema stöku sinnum.

Nafnlaus sagði...

Já einmitt, Palli! Ég ætlaði einnig að mæla með plokki nefhára. Svona fræðilega séð, værum við með nefhár, auðvitað.