föstudagur, nóvember 23, 2007

Ég er svo kosmískur að... Að það hálfa væri nóg.

Ég spila fótbolta og finnst það mjög gaman. Það er ekki hægt að komast hjá því að rekast á menn í fótbolta, tja eða konur. Árekstrarnir eru misharkalegir og af þeim hljótast mishuggulegir marblettir. Ætli ég sé ekki bara alltaf með marblett einhvers staðar á líkamanum, annað hvort vegna fótboltaárekstra eða líkamlegs ofbeldis af höndum fyllibyttunnar. Þessir marblettir eru oftast bara einfaldlega ljótir og ekkert meira um þá að segja. Ég lenti hins vagar í því í sumar að fá eitt hné en ekki tvö framan á vinstra lærið og af því hlaust marblettur. Í fyrstu fannst mér ekkert merkilegt við hann nema að hann var í mjög góðu sjónfæri þegar ég sat á klósettinu að losa úrgang. Eitt sinn, ca. tveimur dögum eftir að áverkinn lét á sér bóla tók ég eftir nokkru sem mér þótti svo merkilegt að ég gat ekki annað en rakað hárin af viðkomandi svæði og tekið mynd af marblettinum. Sjá mynd 1 og 2.

Mynd 1

Mynd 2 (ekki í fókus, alveg óvart samt)


Glöggir lesendur geta séð á Mynd 1 hvernig hárin eru greinilega í minna magni yfir þessum ljóta marblett og einnig að höggið hefur verið svo fast að sprungið hefur lítillega fyrir í húðinni og blætt. Ennþá gleggri lesendur sjá einnig hvernig marinu má lúsa sem gulum kringlóttum bletti með blárri hulu sem teygir sig í tæpan hálfhring í kringum miðjuna.

Ég skoða APOD(Astronomy Picture Of the Day) reglulega og hef þ.a.a. langi státað mig af því að hafa gott sjónminni. Þetta tvennt er líklega það sem olli því að það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá téðan marblett var að þetta liti alveg eins út og blettirnir á Júpíter eftir Shoemaker-Levy halastjörnuna. Sjá myndir 3, 4 og 5.

Mynd 3

Mynd 4

Mynd 5


Verið endilega svo væn að segja mér að þið sjáið likindi milli þessara mynda, það er svo svekkjandi þegar maður segir að einhverjir tveir hlutir séu líkir og svo eru bara allir ósammála.

Að lokum vil ég leggja til að niðurgangur, steinsmuga eða flautandi drulla sé hérmeð kallað saurbleyta.

7 ummæli:

Arnhildur Eyja sagði...

Mikið er gott að heyra að þú breytist ekki neitt við að flytja heim Svenni... Kveðjur frá Köben - Eyja

Þorsteinn Snæland sagði...

Vá þetta er eins! Sá það strax, meira að segja áður en ég sá Júpitermyndirnar.

Þú hefðir kannski getað selt lærið á þér á ebay - maður spyr sig.

Nafnlaus sagði...

hahahaha ... þú er snillingur Svenni og já eins og Eyja segir breytist aldrei ;) ... sem er gott :).
En hjá ég er sammála þér :D.
Kveðja
Fjóla

Unknown sagði...

Til hamingju með afmælið í fyrradag, Svenni. Knús!

Pall Melsted sagði...

Gastu ekki bara samplað þetta inn á dattinn?

Tóta sagði...

hvar er Guðlaug...?

Sigrún Helga Lund sagði...

Tek heilshugar undir með þér!

Fótbolti er snilld.