þriðjudagur, nóvember 06, 2007

vaða á súðum...,...Stefán frá Möðrudal

Það er svo gaman að vera hérna á Íslandi að...að það hálfa væri nóg. Síðan ég kom til landsins er ég líklega búinn að borða jafnmikið af fiski og kjöti, og það er ekki verið að pína mig. Fylgifiskar alveg að rúla. Ég er reyndar líka búinn að komast að því að ég er með eilítið of háan blóðþrýsting, svo að ég verð að fara að slaka aðeins á í saltinu og fara að hreyfa mig meira. Stuðlaugin og ég ætlum að taka morgíngsflokk á þetta í Laugum. Sprikla bara áður en gula klessan poppar upp.

Annars er búið að vera með eindæmum vont veður og mér skilst að það sé met, þ.e. hversu blautt hefur verið. Ég er farinn að halda að við hjúin köllum fram veðurmet með því einu að vera til. Þannig var allt síðasta árið í danmörku einhvers konar metár, hvort sem var hiti eða rigning eða bara almenn leiðindi. Ekki segja Global warming. Plís! Ég er að reyna að vera merkilegur.

Annars er Sveinninn farinn leika sér með prikið og kúlurnar aftur, og gengur bara vel. Ætla jafnvel að keppa í þessu í vetur. Það má eiginlega segja að maður hafi vanrækt þennan þátt tilverunnar alveg síðan við Guðlaug kynntumst. Enda var ég þá rétt-ókrýndur íslandsmeistari. Er einmitt að fara að hitta Svenna Blöndal í kvöld og við ætlum að leika okkur aðeins.

Annars er komið að því að setja punktinn yfir i svalleikans með því að fjárfesta í stjörnusjónauka með Pabba. Celestron linsusjónauki með 102mm linsu verður líklega fyrir valinu en ég á ennþá eftir að ræða við Sverri Guðmunds eða Sævar Braga um þessi mál svona alveg til hlítar.

Svalur kíkir, ójá.


Takk fyrir athyglina, og megið þið verða svalari sem fall af tíma.


By the way: Við GodPool erum að fara á sýninguna Leg í Þjóðleikhúsinu á fimmtudaginn.

Engin ummæli: