Nú er kíkirinn uppsettur og flottur heima hjá mér, þ.e. Sigga og Sirrý. Strax farinn að perrast með honum vegna þess að það er ekkert annað að gera. Það er bara alltaf skýjað á þessu landi. Er mest í því að fylgjast með því hve vel skúringafólki gengur í öllum blokkunum í Borgartúninu.
Annars er ekki mikið að frétta. Það er sosum ágætt að taka fram hvað er á fóninum þessa dagana. Playlistinn HRV_month2 inniheldur nýjustu plöturnar með Radiohead, Foo Fighters og Smashing Pumkins ásamt góðgæti frá Opeth, Slayer, Mastodon og Strapping Young Lad. Síðast en ekki síst eru allar 130 Radíusflugurnar líka í sífelldri hlustun.
Radíusflugur eru sumsé sketsar sem innihalda eftirfarandi orð eða setningar:
Hommagangur
35.000 kall á mánuði
Ég vil vera í útvarpi, það er ekki hægt, O
Útvarp Hafrót í Sandgerði
Sjöfn
Þykist vera góður en ert svo bara vondur
Að það hálfa væri nóg
Já eða... Já
Jóhann Löwe
Kindabyssu í kinnina
Jómba Hauks og systur hans Auði Hauks
Forsvarsmenn fyrir nýstofnuð samtök
Já ég sagði það já
Best að saga af mér löppina bara
Vertu úti
Já en mig langar að tala í útvarpið
Ef ég gæti fengið myndirnar. Þá hvað?
Kysstu mig
Haaaaaa?
Síðast en ekki síst, Elvis eða Elvar Árni Pétursson
Þessu er skeytt saman á ýmsan hátt og er útkoman yfirleitt mjög fyndin.
Ég er að fara í snóker í kv0öld aftur og ég vil taka það fram að ég er aftur orðinn góður. Vann Svenna Blöndal bara 5-0 um daginn og tók líka 55 breik sem er massíft, vona bara að hann hafi ekki censored.
Varðandi plöturnar þá er Radiohead alveg hrikalega góð. Ég hef aldrei vitað plötu sem venst eins vel. Hún er róleg með eindæmum og var bara í lagi við fyrstu hlustun en svo fer þetta bara stanslaust batnandi og snilldin er svo mikil að það hálfa væri nóg. Þeir virðast einhvern veginn vita nákvæmlega hvað er það sem veldur því að maður fílar plötu í ræmur, en samt á svo hógværan hátt að það er engin sell out fnykur af þessu. (57/61)
Foo fighters platan rís eiginlega hæst í fyrsta laginu, the Pretender, og er því ekki nærri eins góð og þeirra eldri plötur. (41/67)
Smashing Pumpkins platan Zeitgeist er virkilega góð. Engin old school klassík eins og Siamese dream eða MellonCollie en bara virkilega góð blanda af Adore og þeim gömlu. Ég bara skil ekki af hverju Billy Corgan getur ekki bara haldið sig í þessum stíl alltaf. Zwan var shite miðað við þetta og líka sóló ruglið hans. Jimmy kallinn er greinilega sá sem hann þarf til að þetta gangi upp eða bara nafnið. (49/59)
Að lokum vil ég hvetja alla sem eru stundum þreyttir eða óákveðnir til að kaupa bara nýjustu plötuna með Strapping Young Lad og setja á You Suck. Það geta allir annað hvort vaknað af værum blundi eða verið sammála um að þetta er snarklikkað lag.
9 ummæli:
Hér er aldrei skýjað. Þið verðið bara að koma til Köben að prófa nýja kíkinn og hætta að perrast þarna heima!!
Ykkar er sárt saknað.
Ég bið ekki um mikið, eina skitna stjörnu gegnum skýin, en nei nei. Þín er líka sárt saknað, Guðlaug fann engan til að fara á fyllerí eftir VST ballið nema mig og Haffa. Hvorugir vænlegir til óláta, lengur.
Hvad med mig? Eg skal vera godur.
-Beggi
Ég skal segja þér, innevS, frá iTunes playlistanum mínum þessa helgi:
Fyrst hlustaði ég á Goldberg-tilbrigðin leikin af Rosalyn Tureck. Gasalega fínt! Svo Murray Perahia en mér þraut þolinmæðin því ég vissi að ég ætti líka Glenn Gould upptökurnar frá 1955 og 1981. Byrjaði auðvitað á 1955 upptökunni og naut ungæðislegs og fjörugs píanóleiksins til fulls. Loks skellti ég 1981 upptökunni á fóninn og er um fullkomna yfirvegun og ró að ræða hvað túlkunina varðar.
Ég mæli með að þú farir út í næstu plötuverslun og fjárfestir í 1955 upptökunum með Glenn Gould því þær eru alveg snarklikkaðar ;)
Holy fucking crap! Hvaða tegund af steik ert þú eiginlega?!?
Þetta er kosturinn við venjulega tónlist, lög eru bara fokkíng óriginal, mest lagi ein tónleikaútgáfa til. Engar endalausar endurútgáfur og tilbrigði. Mikið vildi ég að þú gætir bara rokkað.
Já, góður! Rock it Sven!
Ja, saell. Hvar eru Mulder og Scully?
BEgg
Þú hefur nú tekið þig vel á í djamminu upp á síðkastið Sveinn.
Djammið er nú bara að vera úti þegar sem kaldast er og glápa á stjörnurnar. Í geimnum sko, ekki Shitney Smears.
Skrifa ummæli