Veðrið leikur við okkur hérna í Bergen og við njótum þess að vera úti alla daga. Síðastliðinn sunnudag var haldin 17.júní hátíð á vegum Íslendingafélagsins. Við skelltum okkur með einn lítinn fána, hlustuðum á afa syngja með sönghópnum, fengum SS-pylsur, harðfisk, flatkökur með hangikjöti og kleinur, og hittum og spjölluðum við fólk á okkar eigin tungumáli. Við teljum okkur vera nokkuð brött í að tala og skilja norskuna, en Svenni fær ítrekað hrós frá vinnufélögum og fleirum. Flott hjá honum!
3 ummæli:
Flottar myndir hjá Svenna.
Fínn dagur í rjómablíðu.
Gaman að sjá svona fínar myndir af ykkur öllum <3
Við fengum mauksoðnar SS-pylsur á 17.júní hátíðinni okkar og SS pylsusinnep - annað var danskt. Merkilegt hvað SS bragðið var samt gott ;)
Gaman að fylgjast með ykkur!
Knús á liðið!
Skrifa ummæli