fimmtudagur, maí 23, 2013

Síðasta nóttin á Kristnibrautinni

Við sitjum hér í tómum kofanum. Einungis rúmdýnudruslur til að sofa á og hreingerningartæki og -tól. Þetta er um það bil það leiðinlegasta sem maður gerir og enn verra þegar verið er að flytja á milli landa. Aumingja tengdó; þau fá fullt af alls konar dóti og drasli á síðustu stundu. Svo er ekki gaman þegar fólk svíkur mann um kaup á húsgögnum í gegnum bland.is. Skamm Anastasia2808!!

Við vonumst til að geta skilað íbúðinni um hádegisbil á morgun og þá getum við hugsanlega skellt okkur í síðustu sundferðina á klakanum í bili. Ég kannaði nefnilega ástandið á sundlaugum í Bergen og þær eru örfáar og lokaðar um sumartímann. En það er hægt að fara í "sjöbad". Held ég sleppi því með guttana mína tvo...

Tvær nætur eftir á skerinu!

1 ummæli:

Helgi sagði...

Góða ferð.
Við hittum ykkur voanandi í júlí, í BergenBergen.