miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Jæja...

Mér finnst svo leiðinlegt að blogga en ég set samt nokkrar línur hér fyrir þá sem hafa áhuga.

Við erum bæði búin að skila ritgerðunum okkar og bráðum getið þið kallað okkur meistara! Haha! Varnirnar okkar fara fram 27. og 28. ágúst og eru allir velkomnir!! Ritgerðin mín (og Gústa) heitir "Analysis of a Spatial Truss System" og Svenni skrifaði "Elastodynamic Waveguides". Við munum fá 13 fyrir þetta, ekki spurning!

Fríður og Kristinn voru hjá okkur í fimm daga um verslunarmannahelgina og það var algjört æði að hafa þau. Við tókum því rólega með hæfilegu blandi af verslunarleiðöngrum, Tívolí, túristastöffi og veitingahúsum. Svo buðu Guðný og Thomas okkur til sín til Århus þar sem við gistum eina nótt og fengum frábæran mat og drukkum mikið (Fríður kom með Opal!). Verslunarmannahelgarþynnkan var því á sínum stað.

Við Svenni erum að njóta síðustu rólegheitadaganna í Baunalandi á milli þess sem við eyðum peningum sem við eigum ekki - sniðug! Svenni er loksins búinn að fá góðar græjur, af dýrari gerðinni, frá Harman/Kardon. Svaka flott með surround systemi. Miele þvottavélin kemur svo í hús eftir 2 vikur. Missum okkur samt ekki alveg í kaupæðinu sem grípur flesta Íslendinga þegar flutt er heim.

Þeir sem vilja taka á móti okkur þegar við komum heim er velkomið að mæta á höfnina á Seyðisfirði þann 18. september, að morgninum til. Ég býst við móttökusveit ;o)

2 ummæli:

Tóta sagði...

Er hrædd um að ég komist ekki í móttökuna en ég skal veifa með vasaklúti frá höfninni í Danmörku. Ykkar verður sárt saknað...

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með ritgerðarskil og gangi ykkur vel í næstu viku. Þið takið þetta með trompi, ekki spurning :-)

Það er örugglega svolítið skrítið að vera að flytja heim, ekki bara í á leið heimsókn heim.

Verð því miður ekki í móttökusveitinni, væri alveg til í það samt - allt of langt síðan við höfum sést.

Knús!