föstudagur, júní 15, 2007

Óvænt helgarfrí í Stokkhólmi

Ég skellti mér óvænt í stutta helgarferð til fjölskyldunnar í Stokkhólmi um síðustu helgi. Sara átti ekki von á mér og má segja að henni og Söndru hafi brugðið þegar ég birtist skyndilega inni í forstofu hjá þeim ;o) Þetta tókst svo fullkomlega!! Það var yndislegt að vera hjá þeim eins og alltaf. Börnin stækka úr grasi og Sandra er farin að standa upp og príla upp í tröppur - fjör á þessu heimili!

Fjölskyldan að borða úti á pallinum góða.

Sundlaug með ísköldu vatni til að kæla kroppinn.

Sandra vildi auðvitað vera með í fjörinu.

Sandra prinsessa :o)


Annars er það í fréttum að Gústi, sem ég er að vinna verkefnið með, var að eignast tvíbura í vikunni - stelpu og strák - innilega til hamingju! Svo það er smá rólegheitavika núna áður en við tökum lokasprettinn. Pétur er búinn að vera hjá okkur í tvo daga og við fórum á flottan tælenskan veitingastað í gærkvöldi og nutum veðurblíðunnar við Nyhavn. Mjög gaman að fá hann í heimsókn svona títt, hann er orðinn hálfgerður heimilisköttur hjá okkur.

Á morgun eru víst 17. júní hátíðahöld á vegum Íslendingafélagsins - finnst ykkur ekki eitthvað skrítið við það?!? Veit ekki hvort ég tek þátt í svona vitleysu, enda spáir hellirigningu á morgun og strandhátíð er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æðislegar myndir og frábært hjá þér að skella þér í smá frí líka :-)

Tóta sagði...

mússí krútt maður!