þriðjudagur, júní 05, 2007

Grasekkja...

Á morgun heldur húsbóndinn til veiða á Íslandinu góða - hann færir vonandi björg í bú! Vá, en þjóðlegt eitthvað hjá mér. Vantar bara að ég prjóni lopasokka og borði slátur á meðan hann er í burtu. En já, Svenni er sem sagt að fara til Íslands til að veiða í Laxá í Mývatnssveit. Mikið öfunda ég hann!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

og ég er grasekkja líka. hugsum til hvor annarrar. Heyrði frá Nenna í morgun að veðrið norðan heiða er bjart og hlýtt, annað eða hér.
Hafðu það sem allra best og ekki vera of einmana!
þín tengdó

Nafnlaus sagði...

Mikið öfunda ég Svenna líka, svo gaman að skreppa heim.