miðvikudagur, maí 30, 2007

Enn eitt af "Things to do before you die"-listanum

Já, það má með sanni segja að nú hafi maður stigið stórt skref í átt að hámarksflippi. Sem ég skrifa þessi orð, í skólanum, sit ég á rassi mínum. Alla mína skólatíð hefur stólsrasskinnavörnin verið í formi síðbuxna, oftast gallabuxna eða þess háttar. Undir þeim hafa, sem og í dag, oftast verið nærbuxur í speedo-sniði. Þá vitið þið það. Boxernærbuxur eru bara ekki nægilega hamlandi. Hylja illa það sem stundum þarf að hylja.

Ég legg til að lesendur hugsi sig gaumgæfilega um áður en þeir halda áfram lestrinum. Til að verja saklaus augu fyrir þssu mun ég skrifa sannleikann afturábak, svo að ekkert skiljist nema haft sé fyrir því.

!muxubttuts ruddælk ilrefalóks muním á nnis atsryf í gé re gad Í

Þessi ákvörðun var tekin í ljósi þess að hitinn í þessu landi fór svo langt yfir velsæmismörk í gær að ég gat varla setið í skrifstofustólnum mínum af völdum ofgnóttar .ativsgnup

Annars er ég að koma til heimalands míns Ísalands í næstu viku um miðjan miðvikudag og mun daginn eftir halda norður til Mývatns að veiða. Ég verð þar til sunnudags og flýg aftur út á mánudaginn. Þessi ferð verður því til þess eins að hlaða batteríin fyrir lokasprettinn í verkefninu svo að ég vona að enginn verði sár ef hann fær ekki heimsókn því ég hef eiginlega ekki tíma fyrir það nema þá í mýflugumynd.

6 ummæli:

baldvine sagði...

Spurningin er auðvitað hvort þú varst í naríum innan undir stullunum.

Þú verður nú að heilsa upp á mig áður en þú ferð til þess að fá þyngda Yngva Péturssyni ásamt öðrum leynivopnum.

Ciao, Baldvin

Nafnlaus sagði...

Ég gerði þetta líka í fyrsta sinn í síðustu viku. Leið reyndar eins og asna fyrst, en var svo farinn að verða bara ansi lukkulegur með mig þegar á leið og daginn.

innevS sagði...

Baldvin, þú verður að lesa betur. Ég sagðist vera í naríum.

Annars er ég núna bara orðinn gaurinn í stullunum og svörtu sokkunum. Kannski ekki mest töff, en minnst .ruttievsgnup

Tóta sagði...

Þú ert svo óstjórnlega hreinskilinn Sveinn.

Pall Melsted sagði...

Ég er hræddur um að þú myndir ekki endast lengi hérna í Amríkunni. Hér dugar ekkert meira en stuttbuxur og skyrta/laus stuttermabolur og sandalar ef maður ætlar að höndla hitann.

En þegar hitinn kemst á skrið þá setja allir loftkælingarnar á fullt svo að það er vel hægt að ná sér í kvef yfir hásumarið. Mér er sagt að ástandið sé verra eftir því sem sunnar dregur en mig langar ekki að staðfesta það.

Nafnlaus sagði...

Er itivsgnup í rjettu hlutfalli við ddísgnup?

Verst að kontróltvíburinn skuli ekki duga til að sanna það...