Við erum búin að leigja okkur sumarbústað på Djursland og leggjum í'ann á fimmtudaginn - veðrið virðist allavega ætla að verða ágætt. Ætli ég taki ekki bara stuttbuxurnar og hlýrabolina með :) Vona svo að veðrið haldist svona þangað til mamma og pabbi koma, þau eiga skilið að fá smá sumaryl í kroppinn, det er så dejjjjligt!
7 ummæli:
Vúhú!! Þetta lítur mun betur út en hér heima á Íslandi. Eins gott að fara að yfirgefa þetta land.
Hafið það sjúklega gott í fríinu!
Þetta lítur vel út. Góða skemmtun og afslöppun í frínu. Knús ;-)
Ohh... ljúft! Ég dauðöfunda ykkur!
Ef ske kynni að ég gleymdi að fara inn á bloggið á morgun, þá óska ég yndislegri frænku minni til hamingju með afmælið 21. apríl.
Sumarið kom í gær á Íslandi :) :)
Knús og kram.
Til hamingju með daginn Stuðlaug mín :)
Sumarið kom vissulega til Íslands í vikunni, en eins og kemur fyrir svo marga á leiðinni hingað þá týndist farangurinn, þar meðtalið góða veðrið :p
bis später!
Til hamingju með daginn frænka, vona að þú hafir haft það notalegt á afmælisdaginn :)
Hvernig er veðrið í DK? Hérna í Kanada er sumarið að koma og allt gengur mjög vel :)
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar - elskurnar!!
Ég hafði það sko notalegt með Svenna mínum og mömmu og pabba. Fékk svo líka þessa fínu prinsessu í afmælisgjöf ;)
Veðrið hefur nú eitthvað aðeins versnað, frekar napurt eitthvað. Gaman að heyra að allt gengur vel, Helgi minn :)
Skrifa ummæli