miðvikudagur, maí 24, 2006

Kláraði með stæl!

Jæja, þá er enn einni prófatörninni lokið hjá mér - og hún endaði heldur betur vel! Guðlaugin rúllaði upp munnlega prófinu og fékk 11!!! Geri aðrir betur ;)

Takk fyrir kveðjurnar öll sömul! Mikið er ég nú farin að hlakka til að sjá ykkur... eftir 3 vikur :):):) Og nokkur ykkar bara eftir 10 daga - á Spáni - snilld!

Nú er það bara Svenni greyið sem á eftir að klára, en það er nú bara eitt verkefni, engin próf. Og hann er svo ofsalega áhugasamur að þetta er bara gaman hjá honum. Hann nennir heldur ekki að vera með mér í geðveikinni að þrífa glugga og allt mögulegt sem honum finnst ekki þurfa að þrífa. Ég er nefnilega svona nett klikkuð í þessum málum. Er strax byrjuð að þrífa bakaraofninn og á morgun verður lagst á skeljarnar og reittur arfi í garðinum - YNDISLEGT! Og ég þarf ekki að hugsa um neitt, bara eitthvað skemmtilegt eins og Spánarferðina EFTIR 10 DAGA!!! Minns er orðinn svo spenntur!

6 ummæli:

Sara sagði...

elsku dúllan mín - til hamingju....ekki að ég hafi haft neinar áhyggjur af þér ;) Var einmitt að reyna að hringja í þig á skypeinu.... þú ert væntanlega byrjuð að þrífa klósettið eða eitthvað hehe.... en datt í hug að þú værir nú búin að blogga.

Luv,
Sara sys

Nafnlaus sagði...

Til hamingju próflokin og frábæru einkunnina - efast ekki um að þær verði fleiri í þessum stíl.

Guðlaug sagði...

Takk snúllurnar mínar!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju :):):)

Nafnlaus sagði...

og til hamingju!!

Guðlaug sagði...

Takk, takk og takk!