þriðjudagur, maí 30, 2006

Ég var einu sinni nörd

Hæ, hva' segiru? Flooottt, gott a heyra.

Ég er búinn að vera að Matlabast sem aldrei fyrr þessar síðustu vikur. Ég er búinn að læra heilan helling, t.d. að búa til avi fæla í Matlab, mega svalt. Annars er þetta verkefni, sem ég hélt að yrði mér aldurtili, bara búið að vera frekar þægilegt. Góð upprifjun á námsefni kúrsins og það jefur líka gefið mér einhverja stefnu varðandi mastersverkefni. Ég er sumsé frekar líklega að fara mastera ólínuleg sveiflufræði, sem er bara töff.

Varðandi þá karlmenn sem munu striplast með mér á Spáni, þá vil ég bara láta þá vita að ég hefi mér tvær flíkur gekeyptar sem eru appelsínulitar. Kannski eru þetta dönsk áhrif, drengir hér í landi eru frekar metró/hýr-ish. Allavega, ef þið viljið sjást í nærheit minni, þá skuluð þið leita eftir gulum og bleikum litum.

Annars er ég búinn að nördast svo mikið undanfarið að það hálfa væri líklega mjög alvarlegt líka. Ég hef verið að keyra báðar tölvurnar okkar samtímis í allt að 60 þúsund sekúndur (you do the math) til að búa til vídeó sem eru svo náttúrulega massa kúl. Núna er ég einmitt að keyra hina tölvuna, líklega næstu tvo klukkutímana, til að plotta milljón punkta Poincaré mynd af kerfinu mínu. Það er nefnilega að hegða sér kaótískt og þá verður Poincaré myndin svona fractal-type-shit, þ.e. eftir því sem maður eykur punktafjöldann, eykst nákvæmni myndarinnar því engir tveir punktar hafa sömu hnit, see Figure 1. Guðlaugu finnst þetta bara vera geðveiki, og dæmi bara hver fyrir sig.



Figure 1: Þessa Poincaré mynd tók 23.000 sekúndur að gera og hún var blá í eps. Photoshop er undarlegt.

Ég vona að fólk skilji hve töff þetta er og kunni að meta hvers vegna ég nenni að keyra tölvurnar í yfir dag til að fá þessar myndir.

Ég fékk dót í gær. Rattleback. Það er svona spinningsflokkur sem er bara sáttur við að snúast í eina átt, ef maður snýr honum í hina, þá byrjar hann að rugga og snýst svo bara í hina áttina. Þið eruð vonandi með á nótunum, til nótunum flokksins. Ég efast ekki um að það væri hægt að græða pening með þessu einhvern veginn, því þetta er ótrúlegt í fyrstu, svo omgående allavega.

Jæja, hlakka til að taka hittíngsflokk á Spáni, og á Íslandi. Á endursjónum!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Matlab á sko heima í þéttingsflokknum, ég vænti þess að þú forðist for-lykkjur eins og dauðann.

Nafnlaus sagði...

Iss ég var $n$-sinnum nörd.

Nei ég var að meina að forðast for lykkjur við allskonar útreikninga, nota fylkjamargföldunina í staðinn, svoleiðis billjón skrilljónfalt hraðara.

Nafnlaus sagði...

Þú getur skilgreint tímaskrefið með 'fps' í movie2avi og losnað þannig við forlykkjuna....

Reyndar er ég þeirrar skoðunar að markaðsdeildin hjá Intel sé með samning við microsoft um að reglulega bætist góður slatti í einhverja tilgangslausa lykkju í XP sem þarf alltaf að keyrast áður en stýrikerfið framkvæmir einhverjar skipanir.