
Auðvitað kom loksins vorið þegar kominn er tími til að lesa fyrir próf... er það ekki alltaf þannig?! En ástæðan fyrir bloggleysi hefur einmitt verið sú að ég hef ekkert að tala um nema stál eða steypu - could it BE any more boring?
En vorið er svo sannarlega komið! Það kom síðastliðinn þriðjudag og þá byrjaði gróðurinn að taka við sér. Núna er svo kominn vænn grænn blær (hversu mörg æ eru í því) og blómstrandi tré úti um allt. Og eins og sjá má eru túlipanarnir í garðinum okkar í góðum fílingi.
En í morgun skilaði ég lokaverkefni í stálinu og ákvað því að taka lærdómsfrían dag í dag, svona til að vera klár í próflesturinn sem hefst á morgun (góð afsökun ekki satt?). Og dagurinn var alveg frábær: ryksugaði, skúraði, þurrkaði af (ok, ég er klikkuð, ég veit það!), fór í hjólatúr út að ströndinni með Svenna, Tóta kom í grill - marineraðar svínahnakkasneiðar og kartöflusalat, setið úti til klukkan átta!, frábær ís og jarðarber - sem nota bene kostuðu 10 kall 1/2 kg!
Fleiri myndir hér!
23 dagar í Spán...
3 ummæli:
Hér er enginn próflestur og því rigning í dag :(
"...could it B[aldvin]E[einarsson] any more boring?" Eru þetta skilaboð, eða hvað!!! HAHAHA (NB. alltaf gott að hlæja eins og óður að eigin brandara :D)
Alla vega, langaði bara að segja ykkur að hérna í Kaliforníu er SUMARIÐ komið, bara svona til að spæla ykkur. En eins og Beggi veit þá er spælingin mín því að sumrinu hérna í Santa Barbara fylgir massíf þoka. Það gerir skilyrði sem myndast hérna við ströndina þar sem kaldir Alaskastraumar mæta heitum Kyrrahafsstraumum. T.d. í dag er hún svo þykk að þegar ég hjólaði í skólann í morgun þá varð ég rakur af að hjóla í gegnum hana.
Ciao að sinni, gangi ykkur vel í prófunum. Baldvin
Gangi þér vel, Guðlaug, í restinni af prófum, verkefnaskilum og baráttunni við góða veðrið.
Eru ekki minni líkur á rigningu og roki að prófum loknum í Köben samanborið við Reykjavík?
Skrifa ummæli